01. maí 2006 klukkan 17:55
Jæja, best að byrja með nýja síðu..maður er kominn með nett ógeð af gömlu! Vonandi verðum við skvísurnar mun duglegri á þessari síðu...og duglegri í myndunum líka:D
Annars er frekar fúllt að þessi helgi skuli vera búin, því jú það þýðir að prófin séu að fara að byrja:S djjjjjjjííí´ hvað það verður gaman:D!!(enn og aftur reyni ég að sannfæra sjálfan mig) en já, þetta eru ekki nema 2 vikur.
En seinasta helgi var allgjört æði! Byrjaði á fimmtudags nóttu þar sem við fólkið sem erum að fara að útskrifast fórum að vekja kennarna okkar...alveg þræl gaman, enduðum svo í kakó hjá henni Rósu!
Síðan var dimmeteríað upp í skóla á föstudaginn...hver einasti kennari í skólanum var greinilega með próf akkurat á tímanum sem við vorum að trufla tíma!
Og þið krakkar sem voru pirruð yfir því að við vorum að trufla ykkur í prófi, mér er alveg sama!:Þ
Annars var lækna þema hjá okkur. ég var mjög oft spurð af því eftir þetta afhverju ég hefði ekki tekið þátt í þessu..en jújú ég tók þátt..bara greinilegt að það þekkir mig enginn sem læknir! En fannst ég svo ægilega flott í svona lækna fötum að ég er virkilega að íhuga að fara læra læknirinn! Neee...nú er ég að ljúga!
Jæja svo um kvöldið var síðasta kvöldmáltíðin, kennaradjammið! Alveg þvílíkt stuð upp á mánagrundi! Gulla Páls og Ægirs bræður (Haukur og Ægir Karl) voru án efa toppurinn á kvöldinu!! Veit ekki hvort að maður megi/þori/vilji setja inn myndir af þessu....shitt...þetta var svakalegt, segi bara..þau 3 tóku Silvíu Nótt atriði. Haukur og Ægir=Hommi og Nammi!! Hehehehe..
En annars var alveg drullu leiðinlegt niðrí bæ!!!!!!!!!!!!! Endaði eiginlega ein þar...en sem betur fer fékk Fannar(sætasti strákurinn) af fara heim snemma úr vinnunni og skullaði mér heim. Getur verið svo viðbjóðslega leiðinlegt að búa í Sandgerði!
Síðan skellti maður sér í Splash partýið! Sætustráka keppnin fór í gang, ennn,..ekki alveg á fullt, en náðum þó nokkrum fórnalömbum..ég og Elsa vorum að pæla hvort við ættum ekki bara að velja strákinn sjálfar, vitum alveg hver það á að vera híhíhí!
En jæja...um 3 áttaði ég mig allt í einu á því að ég var bara ein..hvar eru stelpurnar, Thelma, Gugga og Elsa! Var í svona hálf tíma að leita og leita og leita! Allar horfnar..:S en jæja það reddaðist og hef ég bara sjaldan skemmt mér svona vel!
ótrúlega mikið af fólki sem labbaði upp að mér og var að vara mig við ýmsum hlutum og hélt að ég væri að ganga einhverjar villigötur! Hehe..æjjj það var bara fyndið! Og gott að svona margir ókunnugir hafi áhyggjur af mér!
Ég mætti með myndavélina mína um kvöldið..þið verðið bara að bíða þanngað til ég nenni að setja inn myndirnar! Þar að segja þessar heilu 3 myndir sem ég tók! Haha..elska hvað ég get verið stundum dugleg að taka myndir!
En jæja þá er þessi langa færsla búin í bili...svo má alveg skirfa í nýju gestabókina og svona.þó svo að þú sért búin/n að skrifa í gömlu. En jæja þá hefst lærdómurinn á billjón! 6 próf! Og fyrsta á miðvikudaginn, samt létt! Stæ 413..iss tek það með litla putta! En gangi ykkur öllum vel í prófunum sem eru að fara að taka próf..og svo verður maður væntanlega með útskrifarpartý 20 maí(væntanlega sagði ég) og aldrei að vita nema að þér verði boðið!
Jæja er farin að læra!
Kv Bergey