10 Janúar
Jájá. Ég sem hélt að ég myndi sleppa við flensuna núna!! En neinei..eins og alltaf þá fæ ég viðbjóðslega hálsbólgu! Hata þetta helvíti
En annars kominn mánudagur. Ógeðslega þreyttur mánudagur!
Helgin var bara sú fínasta. Hæfileikakeppni hjá leikskólunum á föstudeginum. Ekkert smá gaman! Svo var bara djúsað fram að morgni eftir hana!
Laugardagurinn fór í að sofa allan daginn og svo kíktum ég, Gugga og Thelma okkur á “Mýrina”. Mjög góð mynd!! Vorum ekkert smá sáttar með hana. Var líka svo ótrúlega gaman að sjá allt í Sandgerði og á Hvalsnesi/kirkjugarðinum. Gaman líka að sjá gamla skólastjóran sinn í litlu hlutverki hehe. Já og svo kemur upp nafið hjá Pabba hennar Guggu fram í lokinn. Hehe. við gáfumst upp á því að bíða eftir því að sjá það. Já frekar sorglegar haha!
En eftir myndina þá skelltum við okkur á kaffihús. Síðan þegar leið á kvöldið skellum við okkur á smá tjútt. Ákvað að vera driver. Sem var jú alveg ágætt en samt er nú alltaf skemmtilegar að djamma hehe!
Vá get ekki beðið eftir jólunum!!..fékk feitan jólafíling áðan!
Eftir vinnu kom ég heim og lagðist upp í rúm. Var svo kallt að ég kveikti í ylmkertum. Voða kósý. Horfið svo á Bevó og þá var jólaþáttur í gangi. Já þá fannst mér bara eins og það væru komin jól! En alveg um 2 mánuðir í jólin þannig að maður verður að bíða rólegur! Nenni því samt ekki!
Erum svo búnar að ákveða dagsetningu núna á ferðina okkar. Ætlum að fara 10 Janúar til Danmerkur. Var að panta flug áðan eða réttara sagt breyta fluginu mína. Hehe...átti flug á morgun! Hefði nú ekkert á móti því að vera að fara á morgun sko:D Ætlum að vera í kannski 1 eða 2 daga í dk áður en við förum til USA. Taka smá djamm í danmörku. Síðan verður kveðjupartý 6 janúar (á þrettándanum) þannig að það hentar eiginlega bara mjög vel að fara 10...ef við hefðum farið 4 jan þá hefðum við aldrei náð að halda kveðjupartý því að hátíðirnar lenda allar á helgi! Vorum búnar að hafa mikinn hausverk um það hvar við ættum að koma partýinu fyrir hehe. Erum meira að segja kannski búnar að redda manneskju til þess að spila í partýinu. En kemur í ljós þegar nær dregur;)
En já...síðasti mánuður var frekar leiðinlegur hjá mér! Var mikið að pæla hvort ég hefði gert einhvað mikið af mér. kannski einhver karma á eftir mér! Fannst ég ekkert eiga þetta skilið!! Í fyrsta lagi þá byrjaði bílinn minn að bila. Og þurfti að laga ansi mikið sem kostaði MIKLA peninga!!!! Síðan fékk ég beyglaða bók í póstinum! Og svo bilaði nýji ipod video-inn minn!!! Og ég lítið sem ekkert búin að nota hann! Gallaða drasl! Og allat þetta gerðist eiginlega á 1 viku!!! Þá langaði mig sko að fara að gráta! En það verður bráðum búið að redda þessu öllu saman og vondi enda ég með bros á vör!!!!!
vorum pínu sorglegar í bíoinu að bíða eftir nafninu.. hehe svo geðveikt langur listinn maður..