Könnun

Langar þér ekki geðveikt að fara í svona ferð eins og við erum að fara í??:D

Auglýsing

Leit

Max, dont have sex whit your x!

22. október 2006 klukkan 20:28
Skelltum okkur á Sálin í gær...verð að viðurkenna að ég sé pínku eftir peningnum! Ekki það að það hafi verið einhvað leiðinlegt, neinei..heldur það að borga sig inn 2500 kr fyrir 2 klukkutíma!!!! Litla sem þau ná að græða á þessum böllum!....vinnuhelgi og samt sem áður eyddi ég pening eins og ég fengi borgað fyrir það! Fór svo að vinna beint eftir ballið. Það var alveg ágætt enda var ég ekki að nenna einhverju djammeríi lengur.

 
En annars voru þessir 2 tímar þrusu góðirBrosandi enginn önnur en Gugga skellti sér á djammið í keflavík. Svo er maður bara búinn að vera að vinna á Trix alla helgina. Vinna fyrir Siggu mína meðan ´fótboltaleikirnir eru. Voða þægilegt. Hangandi í tölvunni og dæla bjór inn á milli.  

Pantaði mér bók fyrir stuttu á netinu. ”Led by destiny”. Kona sem fór á puttanum í kringum heiminn skrifaði reynslu sína. Er ný byrjuð á henni og hún er strax orðin áhugaverð.   En skemmtilega vildi svo til að henni var troðið í gegnum bréfalúguna!!!! Og kápan á henni rifanið! Er ekki lítið pirruð yfir því! Ætla líka að fara á pósthúsið á morgun og kvarta undan þessu! Sést alveg á henni að það hefur verið mikið mál að troða henni í gengnum lúguna!
          


 
Kinga Frespirit skrifaði þessa bók en hún dó núna í Júní því hún fékk malaríu í heila. Hún fékk malaríu þegar hún var að ferðast í kringum Afríku. Það borga sig að borga rándýrar sprautur áður en að maður fer í svona ferðalag því það eru til alveg ótal margir banvænir sjúkdómar um allan heim. Við stelpurnar ætlum að sprauta okkur vel áður en við förum og hafa góða sjúkratösku með okkur og nóg af niðurgangstöflum!! Allavega ætla ég ekki að vera með niðurgang alla ferðinaÖskrandi...jakk!
         

  
Ætlum að fara svo á morgun eftir hádegi að vesenast í kringum þessar ferð. Pappírsvesenast og svona.reyna að byrja á einhverju. Ætlum að vera búnar að öllu sem fyrst og þá getum við þess í stað notið þess að chilla um jólin og vinna eins og brjálæðingar. Reyna að sleppa öllu stressinu í kringum þetta á jólatímanumGlottandi. Halda svo feitt kveðjupartý og drullast svo út:!!!  já það fer að styttast í jólin maður...get ekki beðið eftir þeim hehe.
 
    76 dagar þanngaði til við                                           förum!...aaaa doldið leiðinlegt að  

horfa á þetta svona.höfum þetta bara
2 og hálfur mánuður:Þ

" twenty years from now you will be more disappointed by the things you didn´t do than by the ones you did do!"

see ya, Beggs

Begga, tellý og Gugga
Thelma skrifar ...
 
Já við ætlum sko að sprauta okkur fyrir þessa ferð hehe..... sprautufíklar:D Það er líka eitt að athuga með lækni á morgun og fá þessar upplýsingar. En hvað er málið með að troða bókinni í gegnum bréfalúguna??, hljóta að vera fagmenn að vinna þarna.

Mér líkar þessi málsháttur.
22. október 2006 klukkan 23:03
Elsa skrifar ...
frábært blogg!!!
23. október 2006 klukkan 03:11
Pála Minný skrifar ...
 
Hey hvar eru myndirnar stelpur???
Eg var farin að hlakka til að skoða þær:)
24. október 2006 klukkan 01:19
Bergey skrifar ...
já fallega beyglan sem gerði það maður hehe! En málshátturinn er flottur:)

og já myndirnar..hehe..æjj þær koma einhvertíman inn þegar ég nenni;)

og já sprauta sprauta sprauta..muna á morgun!!!!!!!!!! minnið mig á það stelpur..er svvooo gleymin
24. október 2006 klukkan 02:43
Bergey skrifar ...
en hey muniði eftir þessu lagi??? Bergþóra..manst þú ekki eftir því..held að við höfum alltaf verið að hlusta á það þegar við vorum yngri hahahaha..
24. október 2006 klukkan 02:44
thelma skrifar ...
 
what, hvaða lag??
25. október 2006 klukkan 18:49
Bergey skrifar ...
max dont have sex with your x
26. október 2006 klukkan 02:32

Skrifa athugasemd