Út í bláinn
Enn og aftur er ný síða
..hehe ...en hini er alveg að fara að loka þannig að ég ákvað að breyta bara svo að allt myndi ekki eyðast!
það er þá þessi hér
www.123.is/utiblainn
þannig að pokagellurnar eru búnar að segja sitt síðasta!
Enn og aftur er ný síða
..hehe ...en hini er alveg að fara að loka þannig að ég ákvað að breyta bara svo að allt myndi ekki eyðast!
það er þá þessi hér
www.123.is/utiblainn
þannig að pokagellurnar eru búnar að segja sitt síðasta!
Nýjasta slúður er það að starfsfólkið á Trix, semsagt þeir sem eru að afgreiða á barnum setji pillur ofan í glösin hjá fólkinu!
Já ég, Elsa og Sigga einmitt stundum þetta. Hahahaha...er ekki allt í lagi! Það sem fólki dettur í hug að búa til!
Og tilgangurinn er??? Já við einmitt erum að reyna að nauðga fólkinu sem kemur á barinn!
Eða það er einmitt semsagt okkur að kenna að margir eru íllilega útúrdópaðir á djamminu í Keflavík. Maður spyr sig!
Anyway..þá segi ég bara engar áhyggjur, ég er ekki að lauma pillum í glasið ykkar;) tek ekki pillur sjálf oghvað þá að deila þeim í aðra!!
Annars er þetta örugglega ein af þeim sögum sem eru ekkert mikið í loftinu, en mamma fær allavega að heyra þær. Gaman að því! Annars þekkir hún móðir mín mig nú það vel að ég þarf nú ekki að hafa áhyggjur af henni
Eftir að ég byrjaði að vinna þarna þá er semsagt fólk búið að ákveða þetta:
Annars er maður ekkert mikið að kippa sér upp úr þessu, finnst þetta alltaf jafn fyndið! Er svosemalveg sama hvað fólk útí bæ haldi um mig. Þeir sem þekkja mig þekkja mig rétt
1 og hálfur mánuður þanngaði til við förum út!!! Og ég get ekki fokkings beðið:D
:DDDDDD
Og já svo verður búin til önnur ferðasíða..þannig að tengiliðurinn kemur hér inn bráðlega!:)
Ég er að springa!!!!
Og svo í þessum töluðum orðum var ég að sjá að Close to home er að fara að byrja aftur. Og vá sá þáttur endaði sko með miklum tárum, og örugglega hjá öllum sem voru að fylgjast með honum!
En ég fanga því að nóvember sé byrjaður! Fagnaði því með trompi, er veik! En samt svo ánægð að ég þarf núna bara að bíða í nóvember. Desember er hvort er svo skemmtilegur mánuður að maður þarf ekkert mikið að bíða!
En hef á tilfingunni að hann verður ekkert svo spes þar sem að markmiðið er bara að fara að vinna og vinna og vinna! Og eyða 0 kr í rugl! Ójú..heimsreisa kostar víst peninga!
Jæja ætla að fara að horfa aftur á sjónvarpið!
Bergey!
Jájá. Ég sem hélt að ég myndi sleppa við flensuna núna!! En neinei..eins og alltaf þá fæ ég viðbjóðslega hálsbólgu! Hata þetta helvíti
En annars kominn mánudagur. Ógeðslega þreyttur mánudagur!
Helgin var bara sú fínasta. Hæfileikakeppni hjá leikskólunum á föstudeginum. Ekkert smá gaman! Svo var bara djúsað fram að morgni eftir hana!
Laugardagurinn fór í að sofa allan daginn og svo kíktum ég, Gugga og Thelma okkur á “Mýrina”. Mjög góð mynd!! Vorum ekkert smá sáttar með hana. Var líka svo ótrúlega gaman að sjá allt í Sandgerði og á Hvalsnesi/kirkjugarðinum. Gaman líka að sjá gamla skólastjóran sinn í litlu hlutverki hehe. Já og svo kemur upp nafið hjá Pabba hennar Guggu fram í lokinn. Hehe. við gáfumst upp á því að bíða eftir því að sjá það. Já frekar sorglegar haha!
En eftir myndina þá skelltum við okkur á kaffihús. Síðan þegar leið á kvöldið skellum við okkur á smá tjútt. Ákvað að vera driver. Sem var jú alveg ágætt en samt er nú alltaf skemmtilegar að djamma hehe!
Vá get ekki beðið eftir jólunum!!..fékk feitan jólafíling áðan!
Eftir vinnu kom ég heim og lagðist upp í rúm. Var svo kallt að ég kveikti í ylmkertum. Voða kósý. Horfið svo á Bevó og þá var jólaþáttur í gangi. Já þá fannst mér bara eins og það væru komin jól! En alveg um 2 mánuðir í jólin þannig að maður verður að bíða rólegur! Nenni því samt ekki!
Erum svo búnar að ákveða dagsetningu núna á ferðina okkar. Ætlum að fara 10 Janúar til Danmerkur. Var að panta flug áðan eða réttara sagt breyta fluginu mína. Hehe...átti flug á morgun! Hefði nú ekkert á móti því að vera að fara á morgun sko:D Ætlum að vera í kannski 1 eða 2 daga í dk áður en við förum til USA. Taka smá djamm í danmörku. Síðan verður kveðjupartý 6 janúar (á þrettándanum) þannig að það hentar eiginlega bara mjög vel að fara 10...ef við hefðum farið 4 jan þá hefðum við aldrei náð að halda kveðjupartý því að hátíðirnar lenda allar á helgi! Vorum búnar að hafa mikinn hausverk um það hvar við ættum að koma partýinu fyrir hehe. Erum meira að segja kannski búnar að redda manneskju til þess að spila í partýinu. En kemur í ljós þegar nær dregur;)
En já...síðasti mánuður var frekar leiðinlegur hjá mér! Var mikið að pæla hvort ég hefði gert einhvað mikið af mér. kannski einhver karma á eftir mér! Fannst ég ekkert eiga þetta skilið!! Í fyrsta lagi þá byrjaði bílinn minn að bila. Og þurfti að laga ansi mikið sem kostaði MIKLA peninga!!!! Síðan fékk ég beyglaða bók í póstinum! Og svo bilaði nýji ipod video-inn minn!!! Og ég lítið sem ekkert búin að nota hann! Gallaða drasl! Og allat þetta gerðist eiginlega á 1 viku!!! Þá langaði mig sko að fara að gráta! En það verður bráðum búið að redda þessu öllu saman og vondi enda ég með bros á vör!!!!!
horfa á þetta svona.höfum þetta bara
2 og hálfur mánuður:Þ
" twenty years from now you will be more disappointed by the things you didn´t do than by the ones you did do!"
see ya, Beggs
er föst í skólanum, lagði óvart í fatlaða stæði, vissi ekki að það væri það, hef oft lagt þar en núna er fatlaða kellan búinn að leggja fyrir aftan mig.. kom út alveg hvaða hálvíti er að leggja fyrir aftan mig.. kíkti í gluggan og kellan með spjaldið og leit þá í kringum mig og sá alveg tvö merki að þetta væri fatlaðastæði.. ótrúlega brengluð...
ohh.. er svo helvíti heppinn.. ég sem ætlaði að fara í ræktina :(
annars er allt gott að frétta, fór í heimsókn til Ásdísar í gær.. Magga var mætt með heitan rétt og Ásdís bauð upp á snakk og fleira stöff..ég bauð bara upp á sjálfan mig en kem næst með eitthvað gott... kom reyndar með ágústu johnssen hollt nammi en fattaði ekki að setja það á borðið.. kemur fyrir næst.. hehe
annars bara fara í klippingu og litun á morgun :) yeah.. kanski að ég geri eitthvað crazy.. hehe.. er ekki alveg búinn að ákveða hvað á að gera..
já og halló .. þetta er ekki djók.. en það voru stelpur að rífast inn á wc í skólanum og ein stelpan stakk hina í hausinn.. með hníf!!! sjúkrabíll og læti!!! kominn í ghetto hérna .. ú úúú
annars .. tími að byrja.. bless bless..
og svo heitir þessi ford bíl "Bergey" geðveikt maður!